Flutningar
Sækjum og skilum vélum, gámum, smáhýsum, heitum pottum, gufuböðum, búnaði, byggingarefni o.fl. og hífum beint á og af pallinum.

Kranabílaþjónusta
Hífingar og flutningar
Hringdu í Svein 666-8600 sveinn@islandskranar.isAlhliða krana- og flutningaþjónusta.
Sækjum og skilum vélum, gámum, smáhýsum, heitum pottum, gufuböðum, búnaði, byggingarefni o.fl. og hífum beint á og af pallinum.
Hífum fólk í 4ra manna körfu með snúningi til vinnu í allt að 36 metra hæð.
Myndir af verkum sem Íslandskranar hafa unnið, nýjustu fyrst. Smelltu á mynd til að stækka.
Íslandskranar veita kranabílaþjónustu þar sem vönduð vinnubrögð, öryggi og góð samskipti eru í fyrirrúmi. Hvert verkefni hefur sínar aðstæður og við leggjum áherslu á að finna hentuga lausn í samráði við viðskiptavininn.
Sveinn Anton Ólafsson, sem hefur yfir 20 ára reynslu, er maðurinn við stýrið og þinn tengiliður þegar þú þarft á þjónustunni að halda. Bein samskipti við þann sem vinnur verkið auðvelda undirbúning og tryggja að upplýsingar um verkefnið komist til skila.
Hvort sem um er að ræða einstakt verkefni eða áframhaldandi samstarf er markmiðið það sama: að vinna verkið af vandvirkni og standa við það sem samið er um.
Ertu óviss um hvernig best er að leysa verkefnið?
Hafðu samband við Svein í síma 666-8600
Gott er að hafa upplýsingar um staðsetningu, þyngd og stærð þess sem þarf að lyfta, ásamt myndum af aðstæðum.
Hringdu í Svein í síma 666-8600 eða sendu tölvupóst á sveinn@islandskranar.is. Lýstu verkinu, hvað og hvenær á að hífa og hvert.
Íslandskranar flytja og hífa gáma, smáhýsi, heita potta, gufuböð, mótafleka, byggingarefni, vinnuvélar, gler og allt mögulegt annað.
Fyrirtækið er staðsett í Grænlandsleið 18 í Reykjavík en tekur að sér verk um allt land, allt árið.
Gott er að vita áætlaða þyngd þess sem á að hífa, fjarlægð frá stæði bílsins að lyftustað og hvort aðgengi sé gott. Ef þú ert ekki viss kemur Sveinn og metur aðstæður.
Kraninn er 72 tm og lyftigetan er frá 15,3 tonnum niður í 580 kg í 32 metrum. Armlengdin er 32 metrar beint út frá bíl og 36 metrar upp.
Já. Íslandskranar eru með 4ra manna mannkörfu með snúningi. Burðargetan er 400 kg auk verkfæra.
Best er að óska eftir tilboði eða heyra í Sveini í síma 666-8600 eða í tölvupósti á sveinn@islandskranar.is.